Fotbolti.net
12.11.26 - 16:10
Elvar Geir Magnússon
- skrifar frá Plovdiv

„Hann er eini leikmaðurinn sem er ekki alveg 100% klár“

Mikael Anderson.

Mikael Anderson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Mikael Anderson er tæpur fyrir leik Íslands gegn Búlgaríu sem fram fer í Plovdiv á morgun. Mikael hefur ekki spilað með félagsliði sínu, AGF, síðustu vikur.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var spurður út í stöðuna á Mikael á fréttamannafundi í dag.
Leikvangurinn fær 7,5 - Sorglega fáir áhorfendur
TENGT EFNI

Leikvangurinn fær 7,5 - Sorglega fáir áhorfendur

„Það er dagamunur. Hann var varkár og tók ekki fullan þátt í æfingu í dag. Hann er eini leikmaðurinn sem er ekki alveg hundrað prósent klár, hann hefur ekkert spilað síðan við komum síðast saman. Annars er ástandið horfið bara mjög gott," sagði Arnar um stöðuna á hópnum.

„Það eru margir að koma inn í þennan glugga með blússandi sjálfstraust og líður vel. Ég man ekki eftir að hafa verið með hópinn áður í svona góðum gír."

Leikur Búlgaríu og Íslands verður 19:45 á morgun, 21:45 að staðartíma.

Ísland er ósigrað á toppi riðilsins og gæti tryggt sér sigur í riðlinum á morgun en Lúxemborg og Eistland mætast á sama tíma og strákarnir okkar leika gegn Búlgörum. Efsta lið riðilsins mun tryggja sér sæti í B-deildinni en liðið sem endar í öðru sæti mun fara í umspil um að komast upp.
Arnar Gunnlaugsson.

Arnar Gunnlaugsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Hann er eini leikmaðurinn sem er ekki alveg 100% klár“
Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.