Fotbolti.net
12.11.26 - 16:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
- Skrifar frá Plovdiv

Arnar Gunnlaugs: Mjög hrifinn af þessari ráðningu

Pochettino er líklega að taka við United.

Pochettino er líklega að taka við United.

Canon

Mynd: EPA

Eimskip
Michael Carrick var í dag látinn fara frá Manchester United eftir tæpt ár í starfi hjá félaginu. Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, er sterklega orðaður við starfið hjá United. Langflest bendir til þess að sá argentínski verði næsti stjóri United.

Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson hefur ekki farið leynt með að hann sé stuðningsmaður United. Á fréttamannafundi í dag var hann spurður út í þróun mála á Old Trafford.
Draumur Arnars að Orri og Andri fari í úrvalsdeildina - „Vonandi báðir í United"
TENGT EFNI

Draumur Arnars að Orri og Andri fari í úrvalsdeildina - „Vonandi báðir í United"

„Blendnar tilfinningar. Sorglegt að missa goðsögn úr grúppunni (Carrick) en ég er mjög hrifinn af þessari ráðningu. Ef við fáum Pochettino sem er búinn að vera hjá Tottenham, þá erum við í toppmálum. Þannig ég er gríðarlega ánægður með þessa ráðningu," sagði landsliðsþjálfarinn á fréttamannafundi í Plovdiv.

Ísland mætir heimamönnum í Búlgaríu á Hristo Botev leikvanginum í Plovdiv annað kvöld. Það er næstsíðasti leikurinn í Þjóðadeildinni og Ísland getur komið sér í ansi góða stöðu á toppi riðilsins með sigri.
Carrick látinn fara.

Carrick látinn fara.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.