Fotbolti.net
12.11.26 - 16:36
Andri Stefánsson

Hlynur: Spiluðum brjálað vel miðað við aðstæður

Auglýsing
Hlynur: Spiluðum brjálað vel miðað við aðstæður
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland tók á móti Grikklandi í fyrri leik liðanna í umspilinu til að komast á EM. Svekkjandi 1-1 jafntefli var niðurstaðan. Hlynur Þórhallsson kíkti í viðtal til Fótbolta.net eftir leik.
Einkunnir U21 - Grátlegt jafntefli
TENGT EFNI

Einkunnir U21 - Grátlegt jafntefli

Lestu um leikinn: Ísland U21 1 - 1 Grikkland U21
Hlynur var ánægður eftir 1-1 jafntefli gegn Grikklandi á Þróttaravelli í dag. Grikkir jöfnuðu metin undir lok leiksins.

„Mér líður í raun bara vel. Við spiluðum leikinn brjálað vel miðað við erfiðar aðstæður.“

Mikil snjókoma hafði áhrif á spilamennsku liðanna.

„Það tók alveg tíma að venjast aðstæðunum og finna taktinn í fótboltanum. Þetta eru ekki aðstæður sem maður vill spila í en við gerðum vel úr þessu.“

Hlynur var einnig sáttur með eigin frammistöðu.

„Ég er mjög sáttur. Mér fannst ég bara ná mér vel inn í leikinn“, sagði Hlynur að lokum.
Ísland fagnar markinu.

Ísland fagnar markinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.