Fotbolti.net
12.12.13 - 23:50
Daníel Freyr Jónsson

Leandro Damiao til Santos (Staðfest)

Leandro Damiao.

Leandro Damiao.

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski landsliðsframherjinn Leandro Damiao er genginn í raðir Santos frá Internacional.

Fjárfestingarfélag að nafni Doyen Sports keypti Damiao á 13 milljónir evra og kom honum til Santos.
Damiao hefur undanfarin misseri verið orðaður við stórlið í Evrópu, en þar hefur Tottenham helst verið nefnt.

Hann hefur undanfarin fjögur ár leikið með Internacional og þar hefur hann sannað sig sem mikinn markaskorarar. Hann hefur hinsvegar ekki náð að sýna sitt besta á þessu ári.

Tottenham var sterklega orðað við hann síðasta sumar og var vermiðinn á honum talinn nema allt að 25 milljónum evra.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.