Al-Sadd 3-1 Hienghene (Eftir framlengingu)
1-0 Baghad Bounedjah (26)
1-1 Amy Roine (46)
2-1 Abdelkarim Hassan (100)
3-1 Pedro Miguel (114)
HM félagsliða hófst í gær með leik Al-Sadd og Hienghene í 16 liða úrslitum. Þjálfari Al-Sadd er Xavi, fyrrverandi leikmaður Barcelona.
1-0 Baghad Bounedjah (26)
1-1 Amy Roine (46)
2-1 Abdelkarim Hassan (100)
3-1 Pedro Miguel (114)
HM félagsliða hófst í gær með leik Al-Sadd og Hienghene í 16 liða úrslitum. Þjálfari Al-Sadd er Xavi, fyrrverandi leikmaður Barcelona.
Al-Sadd skoruðu fyrsta markið í keppninni þegar Baghad Bounedjah kom liðinu yfir í fyrri hálfleik. Amy Roine jafnaði fyrir Hienghene eftir að dómari leiksins ráðfærði sig við VAR skjáinn.
Staðan var 1-1 að leik loknum og því þurfti að grípa til framlengingar. Þar höfðu Xavi og lærisveinar hans betur með mörkum frá Abdelkarim Hassan og Pedro Miguel. Al-Sadd mætir Monterrey frá Mexíkó í næstu umferð á laugardaginn kemur.
Liverpool kemur inn í keppnina þann 18.desember þegar undanúrslitin hefjast.
Athugasemdir