Fotbolti.net
12.12.21 - 12:20
Aksentije Milisic

Luke Rae í Gróttu (Staðfest)

Luke Rae í Gróttu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hinn tvítugi Englendingur Luke Rae hefur gengið í raðir Gróttu en þetta staðfesti Lengjudeildarliðið á Facebook síðu sinni í dag.
Luke spilaði í neðri deildum á Englandi áður en hann gekk í raðir Tindastóls en þar spilaði hann mjög vel og skoraði mikið af mörkum fyrir félagið.

Á síðasta tímabili fór hann vestur og spilaði með Vestra en þar lék hann alls 26 leiki síðasta sumar.

„Ég er mjög glaður með að hafa skrifað undir hjá Gróttu. Mér finnst vera mikill metnaður hjá félaginu - æfingarnar eru góðar og ég held að leikstíll liðsins henti mér vel," sagði Luke.

„Öll vinna í kringum liðið er mjög fagleg og ég trúi því að hér geti ég bætt mig sem leikmaður. Strákarnir hafa tekið vel á móti mér og ég er spenntur að komast betur inn í hópinn sem stendur þétt sama og er hungraður í að ná árangri."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.