12.12.21 - 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Unglingalandsliðsmaður til Gróttu (Staðfest)

Mynd: Grótta

Mynd: Grótta

Grótta hefur klófest markvörðinn Hilmar Þór Kjærnested Helgason fyrir næstu leiktíð.
Hann kemur til félagsins á láni frá Breiðabliki. Hinn 16 ára gamli er uppalinn Gróttumaður en skipti yfir í Breiðablik árið 2019 og hefur spilað þar síðan.
Hilmar er gríðarlega efnilegur markmaður sem á að baki einn leik fyrir U-17 ára landsliðið.
Hilmar er spenntur fyrir verkefninu í Gróttu og segist vera ánægður að vera mættur aftur á Vivaldivöllinn.
„Þetta ferli að koma hingað er búið að vera langt. Ég er mjög glaður að vera kominn aftur og er spenntur að vera partur af þessu liði. Strákarnir, staffið og þjálfararnir eru búnir að taka vel á móti mér og ég hlakka til að vinna með þeim. Ég er mikill og stoltur Gróttumaður og mun gera allt sem ég get til að hjálpa þessu liði að ná langt," segir Hilmar að því er kemur fram í fréttatilkynningu Gróttu.
Hákon Rafn Valdimarsson og Jón Ívan Rivine voru markverðir Gróttu á síðustu leiktíð. Hákon er farinn í atvinnumennsku til Svíþjóðar og kemur Hilmar Þór til með að berjast við Jón Ívan um sæti í liðinu á næstu leiktíð.