Fotbolti.net
13.01.13 - 17:00
Daníel Freyr Jónsson

David Flitcroft nýr stjóri Barnsley (Staðfest)

David Flitcroft nýr stjóri Barnsley (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

David Flitcroft hefur verið ráðinn nýr stjóri Barnsley og tekur hann við af Keith Heill sem rekinn var fyrir skömmu.
Flitcroft er 38 ára gamall og er þetta fyrsta starf hans sem knattspyrnustjóri.

Verkefni hans er að halda Barnsley upp í Championship-deildinni, en þar situr liðið í næst neðsta sæti deildarinnar með 24 stig úr 27 leikjum.

Var hann áður aðstoðarstjóri Keith Hill hjá félaginu og tók hann tímabundið við liðinu eftir brottvikningu Hill. Sú ráðning hefur nú hinsvegar verið gerð endanleg.

Barnsley mistókst að laða að Terry Butcher og Sean O\'Driscoll til liðsins og var því ákveðið að ráða Flitcroft sem stjóra eftir 2-0 sigur liðsins á Leeds í gær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.