Fotbolti.net
13.01.13 - 23:19
Magnús Már Einarsson

Eiður Smári í Club Brugge (Staðfest)

Eiður Smári í Club Brugge (Staðfest)
Canon

Mynd: Kristján Bernburg

Eiður Smári Guðjohnsen skrifaði í kvöld undir eins og hálfs árs samning við Club Brugge en hann kemur til félagsins frá Cercle Brugge. Félögin hafa átt í viðræðum um félagaskiptin undanfarna daga og samningar eru nú í höfn.
,,Ég er mjög ánægður með félagaskipti mín til Club Brugge. Það er heiður fyrir mig að félagið hafi viljað fá mig í sínar raðir,\" sagði Eiður Smári í kvöld.

,,Ég hlakka til að berjast um titla með liðinu. Ég óska Cercle Brugge einnig alls hins besta það sem eftir er á tímabilinu.\"

Eiður Smári, sem er 34 ára gamall, gæti leikið sinn fyrsta með Club Brugge leik gegn Cercle Brugge næstkomandi sunnudag.

Hjá Cercle skoraði Eiður Smári sex mörk í þrettán leikjum en hann lék mjög vel eftir að hann kom til liðsins í byrjun október.

Eiður hafði áður verið án félags í nokkra mánuði eftir að hann yfirgaf herbúðir AEK Aþenu síðastliðið sumar.

Heimild: Heimasíða Club Brugge

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.