13.01.14 - 11:10
Magnús Már Einarsson
Allegri rekinn frá AC Milan (Staðfest)

Massimiliano Allegri.

Mynd: Getty Images

Massimiliano Allegri.

Mynd: Getty Images
AC Milan hefur ákveðið að reka Massimiliano Allegri úr starfi eftir daput gengi á tímabilinu.
AC Milan tapaði 4-3 gegn Sassuolo í gær og er nú með 22 stig í 11. sætinu í Serie A.

Búið var að ákveða að Allegri myndi hætta með AC Milan eftir tímabilið en hann fékk síðan sparkið í morgun.
Mauro Tassotti, aðstoðarmaður Allegri, mun taka tímabundið við liðinu en Filippo Inzaghi og Clarence Seedorf fyrrum leikmenn AC Milan hafa báðir verið orðaðir við þjálfarastarfið.
Hinn 46 ára gamli Allegri tók við AC Milan árið 2010 og stýrði liðinu til sigurs í Serie A á fyrsta tímabili. Gengi liðsins hefur hins vegar legið niður á við eftir það en margir lykilmenn hafa horfið á braut undanfarin ár.