13.01.14 - 18:01
Hafliði Breiðfjörð
Arnór Sveinn Aðalsteinsson í Breiðablik (Staðfest)

Arnór Sveinn og Borghildur Sigurðardóttir formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks eftir undirskriftina. Hann gerði þriggja ára samning við félagið.

Mynd: Breiðablik

Breiðablik tilkynnti rétt í þessu að Arnór Sveinn Aðalsteinsson sé genginn í raðir félagsins að nýju eftir að hafa verið í atvinnumennsku hjá Hönefoss í Noregi undanfarin ár.
Arnór Sveinn skrifaði undir þriggja ára samning við Breiðablik í dag en hann er varnarmaður sem hóf feril sinn hjá félaginu.

Arnór Sveinn, sem verður 28 ára gamall í lok mánaðarins, er uppalinn Bliki og á að baki fjölmarga leiki fyrir Breiðablik og var til að mynda ykilleikmaður liðsins árið 2009 og 2010 þegar liðið var íslands- og bikarmeistari.
Þá hefur hann leikið 12 A landsleiki og 9 U21 árs leiki fyrir íslands hönd.
Síðustu árin eða frá 2011 hefur Arnór Sveinn leikið fyrir Hönefoss í Noregi.
,,Knattspyrnudeild Breiðabliks lýsir mikilli ánægju sinni með að vera búinn að endurheimta Arnór Svein aftur í Blikabúninginn og væntir mikils af honum næstu þrjú árin hið minnsta,\" sagði í tilkynningu félagsins.