13.01.14 - 19:01
Elvar Geir Magnússon
Gullknötturinn til Cristiano Ronaldo (Staðfest)

Ronaldo með Sepp Blatter, forseta FIFA.

Mynd: Getty Images

Ronaldo með Sepp Blatter, forseta FIFA.

Mynd: Getty Images
Þá er það orðið ljóst. Cristiano Ronaldo hefur verið valinn besti knattspyrnumaður heims fyrir árið 2013 en í þessum skrifuðu orðum er hann að fá sjálfan Gullknöttinn, Ballon d\'Or.
Ronaldo hefur oft þurft að lúta í lægra haldi fyrir Lionel Messi þegar þessi verðlaun eru afhent en ekki að þessu sinni. Um er að ræða stærstu einstaklingsverðlaun sem fótboltamaður getur fengið í heiminum.

Ronaldo skoraði 69 mörk í 60 leikjum á árinu 2013. Hann fór á kostum með félagsliði sínu Real Madrid á Spáni og einnig með landsliði Portúgal en hann á stóran þátt í því að þjóð sín tryggði sér sæti á HM í Brasilíu næsta sumar.
Ronaldo var klökkur þegar hann hélt þakkarræðuna og táraðist. Þetta er í annað sinn sem hann hlýtur þessi verðlaun en hann er vanari því að lenda í öðru sæti á eftir Lionel Messi sem var einnig tilnefndur að þessu sinni auk Franck Ribery.
Samkvæmt fréttum endaði Messi í öðru sæti í kjörinu en Ribery í þriðja sæti.