13.01.14 - 16:49
Magnús Már Einarsson
Jonas Gutierrez til Norwich á láni (Staðfest)

Jonas ánægður með Norwich trefilinn.

Mynd: Twitter - Norwich

Jonas ánægður með Norwich trefilinn.

Mynd: Twitter - Norwich
Norwich hefur fengið Jonas Gutierrez til liðs við sig á láni frá Newcastle en samningurinn gildir út tímabilið.
Argentínumaðurinn kom til Newcastle frá Real Mallorca 2008 og hefur leikið 195 leiki fyrir félagið.
Argentínumaðurinn kom til Newcastle frá Real Mallorca 2008 og hefur leikið 195 leiki fyrir félagið.
Þessi 30 ára leikmaður hefur þó aðeins spilað tvívegis á þessu tímabili, hann byrjaði í 4-0 tapi gegn Manchester City í fyrstu umferð og kom inn sem varamaður í 2-1 sigri gegn Cardiff.
Chris Hughton fékk Jonas til Newcastle en hann er nú knattspyrnustjóri Norwich.
Chris Hughton fékk Jonas til Newcastle en hann er nú knattspyrnustjóri Norwich.
