Fotbolti.net
13.01.14 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Sindri Pálmason til Esbjerg (Staðfest)

Sindri Pálmason til Esbjerg (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sindri Pálmason, leikmaður Selfyssinga, gekk í gær til liðs við danska úrvalsdeildarliðið Esbjerg. Sindri skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við félagið en þetta kemur fram á sunnlenska.is.
Sindri, sem er 17 ára gamall, fór til Esbjerg á reynslu í október og í kjölfarið sýndi danska félagið mikinn áhuga á að fá hann til liðs við sig. Selfyssingar samþykktu síðan tilboð Esbjerg í Sindra rétt fyrir jól og í framhaldinu fór hann í samningaviðræður við liðið.

„Nú taka bara við æfingar og æfingaleikir en ég byrja að æfa með liðinu á morgun (í dag), mánudag. Síðan er fyrirhuguð æfingaferð til Hollands áður en keppnistímabilið byrjar þann 1. mars,“ sagði Sindri í samtali við sunnlenska.is en hann mun æfa með U19 ára liði félagsins.

Sindri er miðjumaður og spilaði hann þrjá leiki með Selfyssingum í 1. deildinni í sumar og var lykilmaður í 2. flokki félagsins.

Hann lék sína fyrstu landsleiki í haust þegar hann var valinn í U19 ára lið Íslands og lék þrjá leiki með liðinu á móti í Svíþjóð.

Heimild: Sunnlenska.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.