13.01.16 - 16:28
Magnús Már Einarsson
Aron Þórður í Þrótt (Staðfest)

Gregg Ryder og Aron Þórður.

Mynd: Þróttur

Gregg Ryder og Aron Þórður.

Mynd: Þróttur
Þróttur hefur fengið kantmanninn Aron Þórð Albertsson til liðs við sig frá HK en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.
„Ég er hæstánægður með þennan samning og stoltur af því trausti sem Þróttur hefur sýnt mér. Þjálfarateymið er gríðarlega öflugt og umgjörðin hérna í Þrótti er flott. Ég hlakka mikið til þess að þróast hérna áfram sem leikmaður og leggja mitt af mörkum,“ segir Aron Þórður.
Aron er 19 ára gamall en hann lék með Breiðabliki í yngri flokkunum. Hann var sextán ára gamall þegar hann lék fyrsta leik sinn í efstu deild.
Aron Þórður spilaði með Fram í Pepsi-deildinni 2013 og 2014 áður en hann fór til HK fyrir síðasta tímabil. Aron á einnig að baki nokkra leiki með yngri landsliðum Íslands.
„Aron er eldsnöggur, vinnusamur og skapandi leikmaður, sem hefur frábært auga fyrir sendingum. Við erum sannfærðir um að hans geti beðið bjartur ferill hjá Þrótti og að hann verði einn af lykilmönnum félagsins nú þegar við byggjum upp til framtíðar. Þrátt fyrir ungan aldur er Aron reynslumikill í efstu deild og það segir sína sögu um hæfileikana,“ segir Gregg Ryder, þjálfari Þróttar.
Þróttur samdi fyrr í vikunni við danska varnarmanninn Sebastian Svard en í vetur hafa Emil Atlason og Brynjar Jónasson einnig komið til félagsins.