Fotbolti.net
13.01.16 - 20:30
Arnar Geir Halldórsson
Ítalska deildin

Diamanti til Atalanta (Staðfest)

Stutt stopp á Vicarage Road

Stutt stopp á Vicarage Road

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski sóknarmiðjumaðurinn Alessandro Diamanti er genginn til liðs við ítalska úrvalsdeildarliðið Atalanta á láni út leiktíðina.
Diamanti var lánaður frá Asíumeisturum Guangzhou Evergrande til Watford fyrir tímabilið en hefur aðeins komið við sögu í þrem leikjum hjá enska liðinu og þá alltaf sem varamaður.

Þessi 32 ára gamli Ítali hefur nú gefist upp á bekkjarsetunni á Vicarage Road og mun hjálpa Atalanta það sem eftir lifir tímabils en liðið er í 11.sæti Serie A.

Diamanti á 17 landsleiki að baki fyrir A-landslið Ítalíu og hefur komið víða við á ferlinum en Atalanta verður áttunda félagið sem hann leikur fyrir í heimalandinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.