13.01.16 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Hilmar Þór Kárason í ÍR (Staðfest)

Hilmar Þór fagnar marki með Sindra.

Mynd: Gunnar Stígur Reynisson

Hilmar Þór fagnar marki með Sindra.

Mynd: Gunnar Stígur Reynisson
Sóknarmaðurinn Hilmar Þór Kárason er genginn í raðir ÍR frá Sindra, en hann hefur undanfarin þrjú tímabil leikið með þeim síðarnefndu í 2. deildinni.
Síðustu tvö tímabil hefur Hilmar Þór verið markahæsti leikmaður Sindra. Hann skoraði 10 mörk í 19 leikjum í deild og bikar síðasta sumar og árið áður skoraði hann 13 mörk í 22 leikjum.
Síðustu tvö tímabil hefur Hilmar Þór verið markahæsti leikmaður Sindra. Hann skoraði 10 mörk í 19 leikjum í deild og bikar síðasta sumar og árið áður skoraði hann 13 mörk í 22 leikjum.
Hilmar Þór er uppalinn hjá Hvöt á Blönduósi og var einungis 15 ára gamall þegar hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk sumarið 2008. Spilaði hann alls 10 leiki í 2. deildinni það tímabil.
ÍR lenti í 3. sæti í 2. deildinni á síðasta tímabili og var hársbreidd frá því að vinna sér inn sæti í 1. deild.
ÍR lenti í 3. sæti í 2. deildinni á síðasta tímabili og var hársbreidd frá því að vinna sér inn sæti í 1. deild.
