Fotbolti.net
13.01.21 - 15:46
Magnús Már Einarsson

Fosu-Mensah til Leverkusen (Staðfest)

Fosu-Mensah til Leverkusen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Þýska félagið Bayer Leverkusen hefur keypt varnarmanninn Timothy Fosu-Mensah frá Manchester United.

Kaupverðið hljóðar upp á 1,5 milljón punda.

Leverkusen, sem er í 3. sæti í þýsku Bundesligunni, náði að krækja í Fosu-Mensah eftir að hann hafnaði nýjum samningi hjá Manchester United.

Fosu-Mensah hefur ekki náð að festa sig í sessi í aðalliði Manchester United en samningur hans við félagið átti að renna út í sumar.

Þessi 23 ára gamli leikmaður hefur áður farið til Crystal Palace og Fulham á láni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.