Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 13. janúar 2021 15:00
Magnús Már Einarsson
Starf Steve Bruce ekki ennþá í hættu
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Newcastle eru margir hverjir óánægðir með Steve Bruce knattspyrnustjóra liðsins.

Newcastle hefur ekki unnið í síðustu átta leikjum og í gær varð liðið það fyrsta til að tapa fyrir botnliði Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

Newcastle er átta stigum frá fallsvæðinu en Fulham, sem er í 18. sæti, á tvo leiki inni.

Samkvæmt fréttum frá Englandi er staða Bruce þó ekki í hættu í augnablikinu.

Mike Ashley er að reyna að selja Newcastle og hann vill ekki skipta um stjóra á meðan verið er að ganga frá yfirtöku á félaginu.
Athugasemdir
banner
banner