fim 13. janúar 2022 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alexander Freyr og Davíð aftur í Hauka (Staðfest)
Alexander Freyr er kominn aftur til Hauka.
Alexander Freyr er kominn aftur til Hauka.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð í leik með Haukum árið 2017.
Davíð í leik með Haukum árið 2017.
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Haukar hafa samið við tvo leikmenn sem þekkja félagið inn og út; Alexander Freyr Sindrason og Davíð Sigurðsson.

Alexander, sem er miðvörður, er uppalinn í Haukum og spilaði sinn fyrsta leik með meistaraflokki árið 2011. Alexander, sem hefur spilað yfir 200 meistaraflokksleiki, kemur aftur heim Ásvelli frá HK þar sem hann spilaði í Pepsi-Max deildinni tímabilin 2019 og 2020, en á síðasta tímabili var hann á láni hjá Fjölni í Lengjudeildinni þar sem hann spilaði 21 leik.

Davíð, fæddur 1992, er sterkur varnarmaður sem getur bæði spilað sem miðvörður og bakvörður en hann á að baki yfir 100 leiki með meistaraflokki. Davíð þekkir vel til hjá Haukum en hann spilaði með liðinu 2017 og 2018 en hann er uppalinn í FH og hefur einnig spilað með Fram, Reyni Sandgerði, Þrótti Reykjavík, ÍH og Aarhus Fremad.

Halldór Jón Garðarsson, formaður knattspyrnudeildar Hauka, fagnar komu þeirra Alexanders og Davíðs.

„Þeir eru flottir karakterar sem koma með gæði, reynslu og metnað inn í okkar hóp og verða mikilvægir hlekkir í að meistaraflokkur karla verði með samkeppnishæft lið í sumar enda er markmiðið að sjálfsögðu að koma Haukum aftur í Lengjudeildina," segir Halldór.

„Alexander er alinn upp á Ásvöllum og stuðningsmenn Hauka vita að þar er á ferðinni sterkur hafsent með stórt Haukahjarta þannig að það er mikið fagnaðarefni á meðal allra Haukara að fá hann aftur heim. Við Haukarar þekkjum einnig Davíð og hann er leikmaður sem gefur allt í leikinn. Hann getur spilað nokkrar stöður og er því frábær viðbót við okkar hóp og þá er hann, eins og Alexander, stór karakter sem lætur í sér heyra. Við væntum mikils af þeim báðum."

Áður höfðu Haukar fengið framherjann Gunnar Örvar Stefánsson, miðjumanninn Daða Snæ Ingason og markvörðinn Milos Peric til félagsins. Þeir tveir fyrrnefndu eru uppaldnir hjá Haukum líkt og Alexander Freyr.

Atli Sveinn Þórarinsson mun stýra Haukum í 2. deild næsta sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner