13.02.13 - 17:00
Magnús Már Einarsson
Völsungur fær ungverskan miðjumann (Staðfest)

Péter Odrobéna og Guðmundur Óli Steingrímsson sem gekk til liðs við Völsung fyrr í vetur.

Mynd: Græni herinn

Völsungur hefur samið við ungverska miðjumanninn Péter Odrobéna en hann mun leika með liðinu í fyrstu deildinni í sumar.
Odrobéna hefur leikið með Völsungi í Kjarnafæðismótinu að undanförnu og hann er nú kominn með leikheimild fyrir leikinn gegn Fram í Lengjubikarnum næstkomandi sunnudag.

,,Hann er stór og sterkur strákur. Hann er 194 cm á hæð og getur spilað á miðjunni og sem hafsent. Ég býst við að nota hann aftarlega á miðjunni,\" sagði Dragan Stojanovic þjálfari Völsungs í samtali við Fótbolta.net í dag.
Odrobéna er 27 ára gamall en hann spilaði síðast með Putnok VSE í þriðju efstu deild í Ungverjalandi.
Völsungur vann aðra deildina síðasltiðið sumar en Dragan segist eiga von á frekari liðsstyrk fyrir sumar.
,,Ég er núna að leita að framherja úti. Það er í skoðun og það er mjög líklegt að fá einn framherja að utan,\" sagði Dragan.