Fotbolti.net
13.02.14 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Viktor Unnar og þrír aðrir í HK (Staðfest)

Viktor Unnar Illugason.

Viktor Unnar Illugason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK hefur fengið fjóra nýja leikmenn til liðs við sig fyrir átökin í 1. deildinni í sumar.

Þeirra á meðal er Viktor Unnar Illugason sem kemur frá Þrótti en hann hefur æft með HK í vetur og leikið með liðinu í Fótbolta.net mótinu.

Viktor Unnar er uppalinn hjá Breiðabliki og Reading en hann hefur einnig leikið með Val, Selfyssingum, Haukum og Njarðvík hér á landi.
HK-ingar hafa einnig fengið Steindór Snæ Ólason og Viktor Örn Margeirsson á láni frá Breiðabliki en þeir léku líka með liðinu í Fótbolta.net mótinu.

Viktor Örn er varnarmaður, fæddur árið 1994 en gekk upp úr 2. flokki síðastliðið haust. Hann er yngri bróðir Finns Orra Margeirssonar fyrirliða Breiðabliks.

Steindór Snær er fæddur árið 1995 og er því ennþá á elsta ári í öðrum flokki en hann er miðjumaður.

Þá hefur HK einnig fengið varnarmanninn Runólf Svein Sigmundsson frá Hetti en hann hefur líka æft og spilað með HK að undanförnu. Runólfur hefur leikið á Egilsstöðum undanfarin þrjú tímabil eftir að hafa áður verið hjá Þrótti, Víkingi R. og Fylki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.