13.02.17 - 16:29
Magnús Már Einarsson
Grindavík fær tvær öflugar frá Brasilíu (Staðfest)

Mynd: Grindavík

Mynd: Grindavík

Grindavík hefur fengið tvo nýja leikmenn frá Brasilíu fyrir keppni í Pepsi-deildinni í sumar.
Leikmennirnir sem um ræðir eru Thaisa de Moraes Rosa Moreno og Rilany Aguiar da Silva
Þær vinkonur hafa meðal annars spilað með Tyresjö FF í Svíþjóð árið 2014. Þær fóru meðal annars í úrslitaleik meistaradeildarinnar með liðinu.
Thaisa er fædd árið 1988. Hún spilar sem miðjumaður og hefur spilað 29 landsleiki fyrir Brasilíu.
Rilany Aguiar da Silva er fædd árið 1986. Rilany er vængmaður og hefur spilað þrjá landsleiki fyrir Brasilíu.
Grindvíkingar eru að undirbúa sig fyrir keppni í Pepsi-deildinni en liðið komst upp úr 1. deildinni í fyrra. Á dögunum kom portúgalska landsliðskonan Carolina Ana Trindade Coruche Mendes til félagsins en hún er miðjumaður og framherji.
„Það er nokkuð ljóst að framundan er spennandi tímar á vellinum í sumar, stelpurnar okkar eru nú að þétta hópinn og stilla saman strengi á undirbúningstímabilinu sem nú stendur yfir, hlökkum mikið til að hefja sumarið og fylla stúkuna,\" segir á Facebook síðu Grindavíkur.