13.02.17 - 13:52
Magnús Már Einarsson
Guðrún Karítas í KR (Staðfest)

Guðrún Karítas Sigurðardóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðrún Karítas Sigurðardóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir keppni í Pepsi-deild kvenna í sumar en Guðrún Karítas Sigurðardóttir hefur gert tveggja ára samning við félagið.
Hin tvítuga Guðrún Karítas er uppalin hjá ÍA en hún hefur undanfarin tvö ár leikið með Íslandsmeisturum Stjörnunnar.
Guðrún Karitas hefur spilaði 82 meistaraflokksleiki og skoraði í þeim 30 mörk. Hún var valin efnilegasti leikmaður Pepsi deildarinnar árið 2014 og á að baki 16 leiki með yngri landsliðum Íslands.
Hún hefur verið á fótboltastyrk og leikið með skólaliði UFS í Tampa í Flórída síðustu misseri. Faðir Guðrúnar er fyrrum landsliðsmaðurinn Sigurður Jónsson.
„Guðrún Karítas er sannarlega ánægjuleg viðbót við liðið og ber merki um þann metnað sem félagið hefur fyrir liði sínu, sem í er að finna góða blöndu af ungum og efnilegum leikmönnum, eldri reynsluboltum og landsliðskonum,\" segir á vef KR.
„Knattspyrnudeild KR lýsir yfir mikilli ánægju með að fá Guðrúnu Karítas í raðir félagsins og bjóða hana velkomna í KR.\"
KR hefur blásið í herlúðra í vetur en félagið Hólmfríður Magnúsdóttir, Katrín Ómardóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir eru allar komnar til félagsins eftir að hafa verið í atvinnumennsku erlendis. Þá hefur fyrrum landsliðskonan Ólína Viðarsdóttir tekið fram skóna á nýjan leik.