Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 13. febrúar 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Ísabella og Ólöf í Þrótt á láni (Staðfest)
Mynd: Þróttur
Nýliðar Þróttar í Pepsi Max-deildinni hafa fengið liðsstyrk frá Val fyrir komandi tímabil. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir og Ísabella Anna Húbertsdóttir hafa gengið til lið við Þrótt á lánssamning

Ólöf, sem fædd er árið 2003, á að baki tvo leiki í meistaraflokki með Val og níu leiki í Inkasso-deildinni með liði ÍA þar sem hún lék síðasta sumar en auk þess hefur hún leikið 18 leiki með yngri landsliðunum og skorað í þeim níu mörk.

Ísabella er fædd 2001 og hefur leikið átta leiki í efstu deild með Val og Fylki og 17 leiki í 1.deildinni með Fjölni. Hún á jafnframt að baki 9 landsleiki með yngri landsliðunum.

„Við bjóðum stúlkurnar velkomnar í Dalinn, í hjartað í Reykjavík. Lifi.....!" segir í fréttatilkynningu frá Þrótti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner