Fotbolti.net
13.03.14 - 19:00
Alexander Freyr Tamimi

Ivan Erlien Furu í KR (Staðfest)

KR-ingar hafa fengið liðsstyrk frá Noregi.

KR-ingar hafa fengið liðsstyrk frá Noregi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ivar Erlien Furu staðfesti í dag að hann væri búinn að skrifa undir samning við KR, en hann kemur til liðsins á láni frá Molde.
,,Ég kláraði þetta í dag. Ég skrifaði undir hjá KR og fer þangað undir um mánaðamótin,\" sagði Furu við siste.no.

Furu er norskur miðvörður og er hann 19 ára gamall. Hann var fimm sinnum í leikmannahópi Molde í norsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Hann kom þó ekkert við sögu og kemur til KR til að fá leikreynslu.

KR var með annan norskan miðvörð á láni á síðustu leiktíð, en sá hét Jonas Grönner og var einmitt í miðvarðarpari með Furu í norska U19 landsliðinu um tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.