Fotbolti.net
13.03.14 - 14:34
Magnús Már Einarsson

Rafn Andri í Þrótt (Staðfest)

Rafn Andri í leik með Þrótti fyrir nokkrum árum.

Rafn Andri í leik með Þrótti fyrir nokkrum árum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Þróttur hefur fengið miðjumanninn Rafn Andra Haraldsson til liðs við sig.

Rafn Andri er uppalinn Þróttari en hann hefur verið á mála hjá Breiðabliki frá árinu 2011.

Þessi 24 ára gamli leikmaður spilaði ekkert í fyrra vegna hnémeiðsla en hann er að komast af stað á nýjan leik.

Rafn Andri hefur æft með Þrótturum undanfarnar vikur og hann hefur nú fengið leikheimild með liðinu.
Rafn Andri hefur skorað 11 mörk í 110 deildar og bikarleikjum á ferli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.