Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 13. mars 2019 22:50
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp ánægður að geta glatt stuðningsmenn Dortmund
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp var himinlifandi eftir sögulegan 1-3 sigur Liverpool gegn Bayern München í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„Þetta er stórkostlegt Meistaradeildarkvöld fyrir Liverpool, strákarnir elska þessa keppni. Þeir leggja allt í sölurnar og ég elska það, hungrið var frábært og ég er mjög stoltur," sagði Klopp eftir sigurinn.

„Við verðskulduðum þennan sigur fyllilega á gríðarlega erfiðum útivelli. Bayern yfirspilaði okkur aldrei og við hefðum getað bætt marki við þegar Mohamed Salah fékk gott færi."

Klopp gerði garðinn frægan sem stjóri Borussia Dortmund og er hann ánægður að geta glatt stuðningsmenn sína í Dortmund þrátt fyrir að vera ekki lengur við stjórnvölinn þar.

„Ég mætti ekki í þennan leik bara til að vinna gegn Bayern. Ég vildi vinna með Liverpool. Ég er viss um að margir stuðningsmenn Dortmund eru ánægðir með þessi úrslit, það er frábært að geta glatt þá líka."
Athugasemdir
banner
banner
banner