Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 13. mars 2020 07:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Capoue um Liverpoolbanann: Verður í heimsklassa
Mynd: Getty Images
Ismaila Sarr átti frábæran leik þegar Watford varð fyrsta liðið til að leggja Liverpool að velli í úrvalsdeildinni. Það gerðist á lokadegi febrúar mánaðar.

Sarr skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 3-0 sigri Watford. Etienne Capoue, liðsfélagi Sarr, tjáði sig um Sarr í viðtali á dögunum.

„Ég hafði heyrt af Sarr þar sem hann lék í frönsku deildinni. Svo kemur hann til okkar og það sést að hann verður framúrskarandi leikmaður; hann getur orðið einn besti leikmaður úrvalsdeildarinnar."

„Hann er feiminn en það er vegna enskunnar. Í kringum okkur sem tölum frönsku þá er hann grínari,"
sagði Capoue.
Athugasemdir
banner
banner
banner