Fotbolti.net
13.03.20 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Joao Felix: Ótrúlegt andrúmsloft á Anfield

Joao Felix: Ótrúlegt andrúmsloft á Anfield
Canon

Mynd: Getty Images

Joao Felix var fremsti maður í liði Atletico á miðvikudagskvöldið þegar liðið sigraði Liverpool í Meistaradeildinni.

Felix fannst mikið til andrúmsloftsins á Anfield koma þegar hann var spurður út í upplifunina í fyrrakvöld.
„Þetta var ótrúlegt. Ég ætti ekki að segja þetta en að sjá fögnuðinn þegar þeir skoruðu í leiknum, að sjá leikvanginn og hvernig var fagnað...," sagði Felix.

„Ég hafði sé þetta í sjónvarpi en að upplifa þetta á staðnum og að vera í þessu frábæra andrúmslfofti... Nánast enginn vinnur á þessum velli og við erum mjög glaðir með sigurinn," sagði Felix.

Liverpool leiddi 1-0 eftir venjulegan leiktíma og því var gripið til framlengingar. Liverpool komst í 2-0 en Atletico svaraði með þremur mörkum og fer áfram í 8-liða úrslit keppninnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.