Það fóru tveir leikir fram í C-deild Lengjubikars karla í kvöld og hélt KFR uppteknum hætti með sigri á útivelli gegn KB í Breiðholti.
Staðan var markalaus framan af en í síðari hálfleik náði Helgi Valur Smárason forystunni fyrir Rangæinga með marki á 64. mínútu.
Breiðhyltingar leituðu að jöfnunarmarki en fundu það ekki. Þess í stað var þeim refsað þegar Bjarni Þorvaldsson innsiglaði sigur gestanna á lokamínútunum, svo lokatölur urðu 0-2.
KFR er með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir á meðan KB er með þrjú stig.
BF 108 situr í öðru sæti eftir þægilegan sigur gegn KM í leik þar sem Elías Muni Eyvindsson var atkvæðamestur með tvennu.
Lokatölur urðu 3-0 fyrir BF sem er þremur stigum á eftir KFR í toppbaráttunni eftir tap í innbyrðisviðureign liðanna.
KB 0 - 2 KFR
0-1 Helgi Valur Smárason ('64)
0-2 Bjarni Þorvaldsson ('90)
BF 108 3 - 0 KM
1-0 Elías Muni Eyvindsson ('27)
2-0 Óttar Sveinsson ('52)
3-0 Elías Muni Eyvindsson ('68)
Athugasemdir



