Fotbolti.net
13.04.16 - 09:00
Magnús Már Einarsson

Marcus Solberg í Fjölni (Staðfest)

Marcus Solberg í Fjölni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fjölnir

Fjölnir hefur samið við danska framherjann Marcus Solberg en hann mun leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar.
Marcus sem er 21 árs framherji hefur reynslu af leikjum í dönsku 1.deildinni og úrvalsdeildinni með AGF Aarhus og Silkeborg.

Hann á einnig yfir 20 leiki með yngri landsliðum Danmerkur.

Mario er sjötti erlendi leikmaðurinn sem Fjölnir fær í sínar raðir í vetur en Ágúst Gylfason, þjálfari liðsins, hefur sagt að félagið þurfi fleiri erlenda leikmenn í ár eftir að hafa misst lykilmenn eins og Bergsvein Ólafsson, Aron Sigurðarson og Kennie Chopart.

Komnir:
Daniel Ivanovski
Igor Jugovic frá Króatíu
Jónatan Hróbjartsson frá ÍR
Marcus Solberg frá Danmörku
Martin Lund Pedersen frá Danmörku
Mario Tadejevic frá Króatíu
Tobias Salquist frá Danmörku

Farnir:
Aron Sigurðarson til Tromsö
Bergsveinn Ólafsson í FH
Illugi Þór Gunnarsson
Jonatan Neftali
Kennie Chopart í KR
Mark Magee til Stratford
Ragnar Leósson í HK
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.