13.04.17 - 10:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dybala skrifar undir nýjan samning (Staðfest)

Dybala verður áfram í herbúðum Juventus.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Paulo Dybala verður áfram í herbúðum Juventus. Hann hefur skrifað undir framlengingu við Ítalíumeistarana til ársins 2022, en þetta var staðfest fyrir stuttu.
Hinn 23 ára gamli Dybala hefur skorað 16 mörk á tímabilinu og hefur verið orðaður við önnur lið, helst Barcelona og Real Madrid.

Hann gekk til liðs við Juventus frá Palermo fyrir 23 milljónir punda árið 2015. Þá skrifaði hann undir fimm ára samning og núna hefur hann framlengt þann samning.
„Ég hef alltaf viljað ná árangri í öllu því sem ég tek mér fyrir hendur og ég veit að Juventus er fullkominn staður ef þú vilt vinna,\" sagði Dybala eftir að hafa skrifað undir samninginn.
Dybala hefur skorað 39 mörk og lagt upp 16 til viðbótar í þeim 82 leikjum sem hann hefur spilað fyrir Juventus síðan hann kom til félagsins, en það er meira en nokkur annar leikmaður liðsins á þeim tíma. Hann er líka í þriðja sæti yfir flesta leiki.

UFFICIALE: @PauDybala_JR rinnova con la Juventus fino al 2022 💎 https://t.co/2SFbhSPo3X #Dybala2022 pic.twitter.com/sys5e08f8t
— JuventusFC (@juventusfc) April 13, 2017