13.04.17 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Ísak Atli lánaður í Leikni frá Fjölni (Staðfest)

Ísak hefur leikið fyrir yngri landslið Íslands.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísak hefur leikið fyrir yngri landslið Íslands.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leiknir í Breiðholti hefur fengið 18 ára hægri bakvörð lánaðan frá Fjölni, Ísak Atla Kristjánsson.
Ísak á einn leik að baki með Fjölni í Borgunarbikarnum en hann hefur leikið með Grafarvogsliðinu á undirbúningstímabilinu.
Ísak á að baki 22 leiki með yngri landsliðum Íslands og hefur hann skorað í þeim tvö mörk. Hann var hluti af sterku liði Íslands sem náði góðum árangri á Ólympíuleikum æskunnar árið 2015.
„Við bjóðum Ísak innilega velkominn í Leikni og óskum honum góðs gengis á vellinum í sumar,\" segir á heimasíðu Leiknis.
Leiknir hafnaði um miðja deild í Inkasso-deildinni í fyrra en Kristófer Sigurgeirsson tók við stjórnartaumunum síðasta haust.
Leiknir R.:
Komnir:
Bjarki Aðalsteinsson frá Þór
Hrólfur Vilhjálmsson frá Erninum
Ósvald Jarl Traustason frá Breiðabliki
Ragnar Leósson frá HK
Ísak Atli Kristjánsson frá Fjölni (lán)
Farnir:
Atli Arnarson í ÍBV
Eiríkur Ingi Magnússon í Augnablik
Kári Pétursson í Stjörnuna (Var á láni)
Kristján Pétur Þórarinsson í ÍR
Óttar Bjarni Guðmundsson í Stjörnuna
Sindri Björnsson í Val