Fotbolti.net
13.04.17 - 13:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Kínverskir fjárfestar kaupa AC Milan (Staðfest)

Berlusconi er búinn að selja Milan.

Berlusconi er búinn að selja Milan.

Canon

Mynd: Getty Images

Kínverskir fjárfestar hafa keypt ítalska stórveldið AC Milan eftir margra mánaða flóknar viðræður.

Skrifað var undir skjölin í Mílanó í morgun og er eignarhald búið að færast yfir á Kínverjann, Yonghong Li, og fjárfestingarhóp hans, Sino-Europe Sports.
AC Milan hefur verið í eigu Silvio Berlusconi, fyrrum forsætisráðherra Ítalíu, frá árinu 1986, eða í 31 ár.

Á valdatíma Berlusconi var félagið sigursælt. Félagið vann átta deildartitla og fimm Evrópubikara.

Liðinu hefur hins vegar ekki gengið jafnvel á síðustu árum. Milan hefur ekki unnið Seríu A frá 2011.

Milan er sem stendur í sjötta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar, 20 stigum á eftir toppliði Juventus.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.