Fotbolti.net
13.04.17 - 06:00
Elvar Geir Magnússon

Serbneskur framherji í Fjarðabyggð (Staðfest)

Serbneskur framherji í Fjarðabyggð (Staðfest)
Canon

Mynd: Fjarðabyggð

Serbneski framherjinn Zoran Vujovic fékk í gær leikheimild með Fjarðabyggð.
Hann leikur í dag sinn fyrsta leik fyrir Fjarðabyggð gegn Einherja kl. 14 í Fjarðabyggðarhöllinni. Um er að ræða leik í Lengjubikarnum.

Zoran er 31 árs og hefur leikið með liðum í Grikklandi, Makedóniú, Ungverjalandi, Danmörku og Serbíu þar sem hann lék m.a. eitt tímabil í úrvalsdeildinni.

Fjarðabyggð leikur í 2. deildinni í sumar og mætir Vestra í fyrstu umferð þann 6. maí.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.