Fotbolti.net
13.04.22 - 14:13
Brynjar Ingi Erluson

Ægir sækir markvörð sem var hjá liðinu 2020 (Staðfest)

Ivaylo Yanachkov er mættur aftur til Ægis

Ivaylo Yanachkov er mættur aftur til Ægis

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Búlgarski markvörðurinn Ivaylo Yanachkov er mættur aftur til Ægis og gerir samning við félagið út þetta tímabil en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Yanachkov eða Choki eins og hann er kallaður er fæddur árið 1986 og spilaði í tvö ár á Íslandi.

Hann lék með Þrótti V. í 2. deildinni árið 2019 áður en hann hélt til Ægis eftir tímabilið.

Choki spilaði eitt tímabil með Ægi áður en hann fór aftur heim til Búlgaríu en er nú mættur aftur og tekur slaginn með liðinu í 2. deildinni.

Ægir hefur farið upp um tvær deildir á þremur árum og verður fróðlegt að fylgjast með liðinu í 2. deildinni í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.