13.04.22 - 13:10
Brynjar Ingi Erluson
Ástrali í Breiðablik (Staðfest)

Melina Ayers er mætt í Blika

Mynd: Knattspyrnudeild Breiðabliks

Melina Ayers er mætt í Blika

Mynd: Knattspyrnudeild Breiðabliks

Ástralski framherjinn Melina Ayers er gengin í raðir Breiðabliks á láni frá Melbourne Victory en þetta kemur fram á Blikar.is.
Ayers er 22 ára gömul og varð meistari með ástralska liðinu á dögunum þar sem hún skoraði átta mörk í fjórtán deildarleikjum.
Hún var mikið frá vegna meiðsla fyrri hluta tímabilsins og komst liðið naumlega inn í úrslitakeppnina í Ástralíu. Þegar hún snéri aftur var hún allt í öllu og átti stóran þátt í að liðið vann deildina.
Ayers er nú mætt til Íslands og mun spila með Blikum á láni frá Melbourne Victory í sumar.
Hún á 6 leiki að baki fyrir U20 ára lið Ástralíu og skoraði í þeim þrjú mörk.