Fotbolti.net
13.04.22 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Vonarstjarna frá Kína til liðs við Fjarðab/Hött/Leikni (Staðfest)

Lið Fjarðab/Hattar/Leiknis leikur í Lengjudeildinni í sumar.

Lið Fjarðab/Hattar/Leiknis leikur í Lengjudeildinni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Fjarðab/Höttur/Leiknir hefur styrkt lið sitt fyrir komandi tímabil. Tu Linli, miðjumaður frá Kína, hefur skrifað undir samning við félagið.
Hún lék síðast í háskólaboltanum í Bandaríkjunum með Taylor University.

Á vefmiðlinum Lai Times er talað um að þarna sé á ferðinni vonarstjarna í kínverskum fótbolta. Linli hefur leikið fyrir yngri landslið Kína og eru vonir um það að hún verði A-landsliðskona í framtíðinni.

Þetta er hennar fyrsta skref í Evrópu og verður fróðlegt að sjá hvernig hún mun standa sig hér á landi.

Fjarðab/Höttur/Leiknir komst upp úr 2. deild síðasta sumar og mun því leika í Lengjudeildinni í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.