Fotbolti.net
13.05.13 - 21:36
Daníel Freyr Jónsson
Ítalska deildin

Roberto Mancini rekinn frá City (Staðfest)

Roberto Mancini.

Roberto Mancini.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur staðfest að Roberto Mancini hafi verið sagt upp sem stjóra liðsins.

Koma þessar fregnir eftir mikinn orðróm undanfarna daga, en í dag er slétt ár síðan Ítalinn gerði City að Englandsmeisturum.
Allt frá því að Manchester United hafði betur gegn City í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn fyrir nokkrum vikum hefur verið stanslaus orðrómur um að tími Mancini hjá City hafi verið á enda kominn.

Ekki bætti það úr skák að City fer titlalaust í gegnum yfirstandandi leiktíð þrátt fyrir að hafa eytt gríðarlegum fjárhæðum í liðið. Varð það ljóst þegar liðið tapaði gegn Wigan í úrslitaleik FA-bikarins um síðustu helgi.

Í tilkynningu frá City nú í kvöld kemur fram að liðinu hafi mistekist öll sín markmið fyrir tímabilið, nema það að tryggja sæti þess í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Sú staðreynd hafi valdið því að félagið ætlar að finna nýjan stjóra fyrir næstu leiktíð.

Mancini tók við City í desember árið 2009 og stýrði hann liðinu því í tæp þrjú og hálft ár. Á þeim tíma tókst honum að gera City að bikarmeisturum árið 2011, áður en hann stýrði liðinu til sigurs í ensku úrvalsdeildinni í fyrsta sinn í 44 ár.

Manuel Pellegrini, stjóri Malaga, er nú talinn líklegastur til að taka við City í sumar, en Brian Kidd, aðstoðarþjálfari Mancini, mun stýra liðinu í lokaleik tímabilsins um næstu helgi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.