13.05.13 - 13:45
Magnús Már Einarsson
Sölvi Davíðsson í KV (Staðfest)

Sölvi í leik gegn KV í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Sölvi í leik gegn KV í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Knattspyrnufélag Vesturbæjar hefur tryggt sér krafta Sölva Davíðssonar í 2. deildinni í sumar, en Sölvi hefur undanfarin sex ár leikið með nágrönnunum í Gróttu.
Forráðamenn KV fagna því að fá Sölva til liðs við félagið.
„Sölvi er mjög hæfileikaríkur leikmaður sem á eftir að nýtast liðinu vel,\" segir Björn Berg Gunnarsson, framkvæmdastjóri KV.
,,Hann kemur með mikla reynslu inn í leikmannahóp okkar og við þekkjum allir hversu erfiður andstæðingur hann getur verið. Nú hlökkum við til að spila með honum og ég er viss um að stuðningsmenn KV eiga eftir að taka vel á móti honum.“
Sölvi er miðjumaður en hann ólst upp hjá KR áður en hann gekk til liðs við Gróttu þar sem hann hefur verið í lykilhlutverki undanfarin ár.
Sölvi, sem er fæddur árið 1984, gæti leikið sinn fyrsta leik með KV þegar liðið heimsækir Ægi í 2. deildinni á laugardag.