Fotbolti.net
13.05.14 - 13:30
Hafliði Breiðfjörð

Lilja Dögg, Inga Dís og Steinunn í Aftureldingu (Staðfest)

Steinunn, Inga Dís, Lilja Dögg og Teddi þjálfari.

Steinunn, Inga Dís, Lilja Dögg og Teddi þjálfari.

Canon

Mynd: Afturelding

Kvennaboltinn
Afturelding fékk góðan liðsstyrk í kvennalið sitt í dag þegar þrjár öflugar knattspyrnukonur gengu til liðs við félagið. Pepsi-deild kvenna hefst í dag og liðið mætir FH í fyrsta leik í kvöld.
Inga Dís Júlíusdóttir er 25 ára gömul, varnarmaður sem er uppalin hjá Þór á Akureyri en hefur einnig æft með Breiðablik og gerir félagaskiptin þaðan. Inga hefur leikið tæpa 90 meistaraflokksleiki með Þór/KA og kemur með mikla reynslu inní lið Aftureldingar.

Annar reynslubolti kemur með Ingu frá Breiðablik en á lánssamning en það er hin reynda Lilja Dögg Valþórsdóttir sem er rúmlega þrítug og hefur leikið 179 leiki í deild og bikar, flesta með KR en hún hefur einnig m.a. leikið með Stjörnunni og Val á sínum ferli. Lilja er reyndar uppalin hjá Þór á Akureyri eins og Inga Dís.

Þriðji Blikinn er svo hin sautján ára gamla Steinunn Sigurjónsdóttir sem er uppalin í Breiðablik og hefur leikið stórt hlutverk í sigursælum yngri flokkum þar á bæ. Steinunn á að baki alls sex U17 landsleiki og er spáð bjartri framtíð í boltanum. Steinunn kemur á láni frá Breiðablik.

Theodór þjálfari er vel kunnugur þessum nýju Aftureldingarleikmönnum eftir veru sína í Kópavogi og má eiga von á að þær láti að sér kveða í rauðu treyjunni í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.