Fotbolti.net
13.05.14 - 11:18
Magnús Már Einarsson

Tim Sherwood rekinn frá Tottenham (Staðfest)

Tim Sherwood.

Tim Sherwood.

Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur ákveðið að reka knattspyrnustjórann Tim Sherwood.
Sherwood skrifaði undir eins og hálfs árs samning við Tottenham í desember eftir að Andre Villas-Boas var rekinn frá félaginu.

Í samningnum var klásúla um að Tottenham gæti sagt Sherwood upp eftir tímabilið og félagið hefur ákveðið að nýta sér þá klásúlu.

Tottenham endaði í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar undir stjórn Sherwood en fyrir nokkrum vikum fóru að berast fréttir um að hann myndi ekki fá að halda áfram með liðið eftir tímabilið.

Þær fréttir hafa nú verið staðfestar en stjórar eins og Mauricio Pochettino og Frank De Boer hafa verið orðaðir við Spurs að undanförnu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.