13.05.16 - 17:24
Magnús Már Einarsson
Atli Már í HK á láni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK hefur fengið varnarmanninn Atla Má Þorbergsson á láni frá Fjölni.
Atli Már er 24 ára miðvörður en hann kom inn á sem varamaður í fyrsta leik Fjölnis í sumar.
Atli hefur skorað þrjú mörk í 65 leikjum með meistaraflokki Fjölnis.
Atli kom til Fjölnis í 2. flokki eftir að hafa áður verið í yngri flokkum hjá Aftureldingu.

Atli er annar leikmaðurinn sem HK fær í sínar raðir í dag en Tómas Ingi Urbancic kom í morgun.
HK gerði jafntefli við Keflavík í fyrstu umferðinni í Inkasso-deildinni en liðið mætir Leikni R. á morgun. Atli er kominn með leikheimild og gæti spilað sinn fyrsta leik með HK þar.