13.05.16 - 11:30
Magnús Már Einarsson
Dagmar og Gabri Lira í KR (Staðfest)

Úr leik Breiðabliks og KR í fyrrakvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Úr leik Breiðabliks og KR í fyrrakvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

KR hefur fengið annan brasilískan leikmann í sínar raðir fyrir Pepsi-deild kvenna í sumar.
Gabri Stephanie Lira heitir leikmaðurinn en hún er 21 árs miðjumaður.
Brasilíski sóknarmaðurinn Fernanda Vieira Baptista kom til KR í síðustu viku.
Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir er einnig komin til KR frá Fram en hún skoraði mikið með Fram í 1. deildinni 2013 og 2014 áður en hún fór til Danmerkur.

KR tapaði 4-1 gegn Breiðabliki í fyrstu umferð í Pepsi-deildinni í fyrrakvöld en næsti leikur liðsins er gegn Val á miðvikudag.