Fotbolti.net
13.05.16 - 13:10
Magnús Már Einarsson

Leiknir F. fær fimmta Spánverjann (Staðfest)

Leiknismenn fagna marki í fyrstu umferðinni.

Leiknismenn fagna marki í fyrstu umferðinni.

Canon

Mynd: Raggi Óla

Leiknir Fáskrúðsfirði hefur samið við spænska varnarmanninn Antonio Calzado.

Antonio er fimmti Spánverjinn í herbúðum Leiknis en hann spilaði síðast með Écija Balompié í spænsku C-deildinni.
Antonio kemur í stað danska varnarmannsins Jonas Westmark sem var sendur heim þar sem hann þótti ekki standa undir væntingum.

Leiknir F. tapaði 3-2 gegn Selfossi í fyrstu umferð Inkasso-deildarinnar en liðið mætir Fjarðabyggð í grannaslag á morgun.

Ekki er ljóst hvort Antonio verði kominn með leikheimild fyrir þann leik eða ekki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.