Fotbolti.net
13.05.16 - 09:26
Elvar Geir Magnússon

Quique Sanchez Flores hættir hjá Watford (Staðfest)

Quique Sanchez Flores

Quique Sanchez Flores

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Watford sendi frá sér tilkynningu í morgun þar sem fram kemur að Quique Sanchez Flores muni láta af störfum sem knattspyrnustjóri eftir leikinn gegn Sunderland um helgina.

Í tilkynningunni er honum þakkað fyrir sín störf og sagt að hann og liðið hafi náð því markmiði að halda sér í úrvalsdeildinni annað árið í röð.
„Quique óskum við alls hins besta í framtíðinni og hann veit að hann er alltaf velkominn á Vicarage Road,\" segir í tilkynningunni. Gengi Watford hrapaði seinni hluta tímabils og liðið vann aðeins tvo af síðustu ellefu deildarleikjum sínum.

Liðið er í 13. sæti eftir góða byrjun á tímabilinu.

Quique er 51 árs Spánverji sem hefur á stjóraferli sínum stýrt Getafe, Benfica, Atletico Madrid og fleiri félögum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.