Fotbolti.net
13.05.16 - 14:03
Magnús Már Einarsson

Ragnar Már Lárusson í Fylki (Staðfest)

Ragnar með boltann í unglingalandsleik.

Ragnar með boltann í unglingalandsleik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir hefur fengið Ragnar Már Lárusson til liðs við sig en hann er kominn með leikheimild með liðinu.

Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis, sagði eftir tapið gegn Val í gær að hann væri að fá íslenskan leikmann til félagsins og nú er ljós að um er að ræða Ragnar Már.

Ragnar Már kemur frá enska félaginu Brighton & Hove Albion þar sem hann hefur verið í unglinga og varaliðinu undanfarin þrjú ár.
Ragnar er 19 ára gamall en hann er uppalinn hjá ÍA.

Síðari hlutann á síðasta tímabili fór hann til ÍA á láni og kom við sögu í einum leik í Pepsi-deildinni.

Ragnar gæti spilað sinn fyrsta leik með Fylki gegn ÍBV á mánudaginn.

Ragnar á að baki samtals 18 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur hann skorað í þeim 4 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.