Fotbolti.net
13.05.16 - 19:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Rangers kaupir Jordan Rossiter (Staðfest)

Rossiter gerir fjögurra ára samning við Rangers

Rossiter gerir fjögurra ára samning við Rangers

Canon

Mynd: Getty Images

Rangers hefur staðfest kaup á Jordan Rossiter, en hann kemur frá Liverpool. Hann mun koma til félagsins í sumar

Hinn 19 ára gamli Rossiter er búinn að samþykkja fjögurra ára samning við skoska liðið.
„Jordan er stórkostlegur ungur enskur leikmaður, sem mun styrkja hópinn mikið,“ sagði Mark Warburton, stjóri Rangers.

„Hann er teknískur leikmaður og hefur auga fyrir leiknum. Hann er líka með frábæran persónuleika og sýnir löngun til þess að spila á hæsta stigi.“

Rossiter á að baki fimm aðalliðsleiki með Liverpool, en hann var meðal annars fyrirliði unglingaliðs félagsins.

Rangers er aftur komið í deild þeirra bestu í Skotlandi eftir erfiða tíma, en liðið mun mæta Hibernian í úrslitum skoska bikarsins þann 21. maí næstkomandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.