13.05.16 - 10:17
Magnús Már Einarsson
Tómas Ingi Urbancic í HK (Staðfest)

Tómas (til hægri).

Mynd: Heimasíða Reading

Tómas (til hægri).

Mynd: Heimasíða Reading
HK hefur fengið Tómas Inga Urbancic til liðs við sig fyrir átökin í Inkasso-deildinni í sumar.
Tómas Ingi yfirgaf herbúðir Reading í Englandi í mars síðastliðnum.

Tómas Ingi er fæddur árið 1996 en hann getur leikið á kantinum og framarlega á miðjunni.
Hann fór frá Víkingi R. til Reading árið 2013 eftir að hafa einnig leikið með KR í yngri flokkunum.
Í fyrra spilaði Tómas á láni hjá Víkingi en hann lék einn leik í Pepsi-deildinni og tvo í Borgunarbikarnum.
HK gerði jafntefli við Keflavík í fyrstu umferðinni í Inkasso-deildinni en liðið mætir Leikni R. á morgun.